12 feb. 2010Í kvöld fara fram nokkrir leikir í 1. deild karla og 1. deild kvenna. Skallagrímur fær topplið KFÍ í heimsókn í Borgarnes og hefst leikurinn kl. 18.30. KFÍ menn hafa 6 stiga forskot á Skallagrím sem er í 3.-5. sæti með 18 stig. kl. 19.15 hefjast svo þrír leikir: Hrunamenn mæta Þór Þorlákshöfn á Flúðum. Þór Þorlákshöfn hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á árinu en Hrunamenn hafa verið nálægt því að ná í sinn fyrsta sigur í ár í síðustu leikjum. Haukar taka á móti liði ÍA á Ásvöllum. ÍA vann Hrunamenn í síðasta leik meðan Haukar töpuðu gegn Hetti. Á Akureyri mætast Þórsarar og Ármenningar. Ármann er með 8 stig eftir 12 leiki en Þór er með 10 eftir 14 leiki. Í 1. deild kvenna eigast við Stjarnan og Fjölnir í Ásgarði og Gridnavík-b tekur á móti Laugdælum í Röstinni. Báðir þessir leikir hefjast kl. 20.00.