6 feb. 2010Í dag, sunnudaginn 7. febrúar, fer fram fyrri undanúrslitaleikur karla í Subwaybikarnum en þá mætast í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpi allra landsmanna Keflavík og Snæfell. Útsending hefst kl. 14:50 og leikurinn hefst svo kl. 15.00. Á mánudaginn kemur svo í ljós hvort Grindavík eða ÍR fara áfram í Höllina í úrslitaleikinn en þau mætast kl. 19.15 í Grindavík annað kvöld. Þess má svo geta að Stöð 2 Sport ætlar að sýna á mánudeginum leik KR og Njarðvíkur í Iceland Express-deildinni kl. 19.15.