4 feb. 2010Síðasti dagur félagaskipta fyrir alla íslenska og evrópska leikmenn, bæði í meistarflokkum og yngriflokkum, er föstudagurinn 5. febrúar og er hægt að skipta til miðnættis. Frá og með 6. febrúar eru öll félagaskipti í þessum flokkum óheimil til loka keppnistímabilsins. Varðandi erlenda leikmenn með bandaríkst vegabréf gilda aðrar reglur en þeim er heimilt að skipta eftir 6. febrúar til loka tímabilsins. Félagaskipti í yngri flokkunum voru áður heimild til loka febrúar ár hvert en því var breytt á síðasta körfuknattleiksþingi síðastliðið vor. Á morgun er einnig síðasti dagur til að skrá venslasamninga hjá KKÍ á yfirstandandi keppnistímabili en um þá gilda almennar reglur um félagaskipti. Skrifstofa KKÍ er opin til kl. 17:00 alla virka daga, en einnig er hægt að senda beiðnir um félagaskipti á faxi til KKÍ, faxnúmerið er 514-4101 eða í tölvupósti á kki@kki.is. Hér á síðunni er hægt að nálgast félagaskiptaeyðublaðið í aðalvalmynd til vinstri. Á eyðublaðinu eru allar upplýsingar um hvernig greiða má fyrir félagaskiptin. Umsóknir um félagaskipti eru ekki samþykktar nema að tilgreint sé með greiðslumáta á umsókninni og sé þá annað hvort staðfest af forráðamönnum nýja liðsins eða að kvittun fylgi í tölvupósti á kki@kki.is sé millifært í heimabanka.