3 feb. 2010FIBA Europe mun að venju útnefna bestu leikmenn ársins 2009 og nú fer að líða að því. Búið er að kjósa en það voru bæði almenningur og dómnefnd sem kusu og nú fer að styttast í að úrslitin verði kunngjörð. Mánudaginn 8. febrúar verður tilkynnt hver er besti ungi leikmaður kvenna og svo þann 10. verður tilkynnt um besta unga leikmann karla. Valið stóð milli leikmanna sem eru fæddir 1989 og síðar. Ricky Rubio hlaut útnefninguna síðastliðin tvö ár í karlaflokki og Gintare Petronyte í kvennaflokki. Föstudaginn 12. febrúar og mánudaginn 15. febrúar verður svo tilkynnt um úrslit í kvenna- og karlaflokki. Það var Pau Gasol hinn spænski sem sigraði í fyrra ásamt Mariu Stepanovu frá Rússlandi. Hægt er að sjá útnefningar í kjörinu á vef [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_W-oliNnmGKI-AOB18oawm1.html [v-]fibaeurope.com[slod-] en meðal þeirra sem eru tilnefndir í karlaflokki eru til dæmis þeir Pau Gasol, Dirk Nowitzki, Hedo Turkoglu, Tony Parker og Vassilis Spanoulis. Úrslit síðustu ára Karlar: 2008: Pau Gasol 2007: Andrei Kirilenko 2006: Theo Papaloukas 2005: Dirk Nowitzki Konur: 2008: Maria Stepanova 2007: Anete Jekabsone-Zogota 2006: Maria Stepanova 2005: Maria Stepanova Besti ungi leikmaður karla: 2008: Ricky Rubio 2007: Ricky Rubio 2006: Rudy Fernandez 2005: Nikolaos Zisis Besti ungi leikmaður kvenna: 2008: Gintare Petronyte 2007: Sonja Petrovic 2006: Sandrine Gruda 2005: Anete Jekabsone