
2 feb. 2010Nú er kominn sá tími að félögin eiga að setja inn öll úrslit leikja (fjölliðamót meðtalin) í gegnum aðgang félaga á Baskethotel. Búið er að setja flýtihnapp á forsíðu KKÍ sem heitir "Skrá inn úrslit". Öll lið eiga aðgang sem sendur hefur verið á hvert félag og með honum er hægt skrá sig inn á umsjónarsíðu [v+]http://kki.baskethotel.com/login/ [v-]kki.baskethotel.com[slod-] og setja inn úrslit. Ef einhvert lið eða þeir sem sjá um þessi mál í viðkomandi félögum vantar aðgang er hægt að hafa samband við skrifstofu KKÍ og fá það uppgefið. Í 8. grein reglugerðar um [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=1[v-]körfuknattleiksmót[slod-] segir m.a.: Í efstu deild karla og kvenna, 1. deild karla, 16-liða, 8-liða og undanúrslitum bikarkeppni KKÍ og í fyrirtækjabikar KKÍ skal heimalið setja allar tölfræðiupplýsingar með þeim hætti sem KKÍ tilgreinir. Skulu upplýsingar þessar hafa borist KKÍ eigi síðar en 2 klst. eftir að leik lýkur. Í öllum öðrum leikjum en tilteknir eru hér, skulu félög skrá inn úrslit leikja á netið með þeim hætti sem KKÍ tilgreinir. Skulu úrslitin hafa borist KKÍ eigi síðar en 1 klst. eftir að leik lýkur. Í fjölliðamótum skulu úrslit allra leikja skráð á netið innan tveggja sólarhringa frá mótslokum af framkvæmdaraðila móts.



