29 jan. 2010Þriðja umferð Íslandsmóts yngri flokka hefst um helgina en þá er keppt í Stúlknaflokki, 11. flokki drengja, 8. flokki stúlkna og 8. flokki drengja. Að vanda eru fjölliðamótin víðsvegar um landið og að þessu sinni eru mót á suðurnesjunum, suðurlandi, vestfjörðum, norðurlandi, austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.