27 jan. 2010Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands býður upp á fræðilegan fyrirlestur á hádegisfundi fimmtudaginn 28. janúar næstkomandi frá kl. 12.00-13.00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Ann Helen Oddberg lektor við Íþrótta- og heilsubraut Menntavísindasviðs HÍ á Laugarvatni mun fjalla um hugmyndafræði Dr. Istavan Balyi sem er heimsfrægur þjálffræðingur. Dr. Istavan Balyi hefur lagt fram viðmið og ráðleggingar sem auka líkur á að börn og unglingar nái árangri og verði áfram í íþróttum út lífið. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.