21 jan. 2010Aganefnd kom saman í vikunni og tók fyrir tvö mál. Ólafur Ólafsson, leikmaður unglingaflokks Grindavíkur, fær áminningu en hann fékk tvær tæknivillur í leik gegn Tindastóli í unglingaflokki. María B. Jónsdóttir, leikmaður stúlknaflokks Keflavíkur, fær einn leik í bann eftir að hafa verið vísað af leikvelli í bikarleik gegn Njarðvík. Úrskurðurinn tekur gildi að hádegi í dag.