7 jan. 2010Í dag voru afhent verðlaun fyrir fyrri hluta Iceland Express-deildanna.
Margrét Kara Sturludóttir úr KR og
Justin Shouse úr Stjörnunni voru valin bestu leikmennirnir og þeir
Benedikt Guðmundsson úr KR og
Teitur Örlygsson úr Stjörnunni bestu þjálfarar.
Úrvalslið kvenna:
Heather Ezell · Haukar
Margrét Kara Sturludóttir · KR
Sigrún Ámundadóttir · Hamar
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík
Signý Hermannsdóttir · KR
Besti þjálfarinn: Benedikt Guðmundsson · KR
Dugnaðarforkurinn: Shantrell Moss · Njarðvík
Sigmundur Már Herbertsson besti dómarinn í bæði Iceland Express-deild karla og kvenna en hann hlaut 35 stig í fyrsta sæti, Jón Guðmundsson fékk 29 og Kristinn Óskarsson 26.
Úrvalslið karla:
Justin Shouse · Stjarnan
Jóhann Ólafsson · Njarðvík
Marvin Valdimarsson · Hamar
Hlynur Bæringsson · Snæfell
Fannar Freyr Helgason · Stjarnan
Besti þjálfarinn: Teitur Örlygsson · Stjarnan
Dugnaðarforkurinn: Semaj Inge · KR
Sú nýbreytni var ákveðin fyrir tímabilið að veita verðlaun fyrir bestu stuðningsmennina og í fyrri hlutanum þóttu stuðningsmenn
Snæfells og
KR bera af.