6 jan. 2010Í ár voru bæði Helena Sverrisdóttir og Jón Arnór Stefánsson í einhverjum af 10 efstu sætunum í kjöri íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins en það er aðeins í þriðja sinn sem það gerist að tveir körfuboltamenn séu á topp 10 og árið í ár er besti árangurinn af þessum skiptum. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem körfuknattleikskona er í úrslitum en Helena fór beint í 4. sætið. Þorsteinn Hallgrímsson hefur oftast verið á topp 10 eða átta sinnum alls. Jón Arnór nálgast hann óðfluga með sjö skipti. Pétur Guðmundsson og Teitur Örlygsson hafa svo báðir verið þrisvar sinnum á topp 10. Einnu sinni hefur Körfuknattleiksmanni hlotnast heiðurinn af því að vera Íþróttamaður ársins en það var Kolbeinn Pálsson árið 1966 en næstu topp sætin hafa skipað þau Þorsteinn Hallgrímsson í 2. sæti 1964, Pétur Guðmundsson í 2. sæti 1981, Jón Sigurðsson 4. sæti 1979, Jón Arnór 4. sæti 2005 og 2007, og Helena 4. sæti 2009. Heildarlistinn (Ár · Sæti · Nafn · Lið · Stig í kjöri) 1960 - 
7 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR 22
 stig 1961
 - 9 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR 20 stig 1962
 - 7 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR 19
 stig 1963 - 
8 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR 19

 stig 1964
 - 2 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR 47

 stig 1965
 - 5 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR 18 stig 1966
 - 1 Kolbeinn Pálsson KR 63
 stig 1967
 - 7 Þórir Magnússon KFR 19

 stig 1968
 - 9 Birgir Örn Birgis Ármann, 16
 stig og 10 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR, 14 stig 1969
 - 7 Þorsteinn Hallgrímsson ÍR, 19

 stig 1970
 - 9 Kolbeinn Pálsson KR, 12

 1972
 - 9 Kristinn Jörundsson Fram og ÍR Knattspyrna og Körfubolti, 14
 stig 1978
 - 7 Jón Sigurðsson KR, 22
 stig 1979
 - 4 Jón Sigurðsson KR, 38

 stig 1981
 - 2 Pétur Guðmundsson Valur, 45
 stig 1982
 - 6 Pétur Guðmundsson ÍR, 27

 1984
 - 10 Valur Ingimundarson Njarðvík, 6

 stig 1986
 - 5 Pétur Guðmundsson LA Lakers, 23 og 7 Pálmar Sigurðsson Haukar, 21 stig 1990
 - 7 Páll Kolbeinsson KR, 52 stig 1991
 - 9 Teitur Örlygsson Njarðvík, 38

 stig 1993
 - 6 Jón Kr. Gíslason Keflavík, 70
 stig 1995
 - 10 Teitur Örlygsson Njarðvík, 34 stig 1996
 - 7 Teitur Örlygsson Larissa, 43 stig
 2002
 - 7 Jón Arnór Stefánsson Trier/KR, 70 stig
 2003
 - 5 Jón Arnór Stefánsson Dallas/Trier, 105

 stig 2004
 - 8 Jón Arnór Stefánsson Dynamo St. Pétursborg, 43 stig
 2005
 - 4 Jón Arnór Stefánsson Caprisa Napoli, 131 stig 2007 - 4 Jón Arnór Stefánsson Lottomatica Roma, 218 stig 2008 - 10 Jón Arnór Stefánsson KR, 39
 stig 2009 - 4 Helena Sverrisdóttir Haukar / TCU,104 og 6 Jón Arnór Stefánsson KR, Benetton Treviso, Granada, 86 stig