3 jan. 2010Helena Sverrisdóttir varð sl. nótt annar leikmaður í sögu TCU háskólans til að ná þrefaldri tvennu. Helena skoraði 17 stig, tók 11 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Með stigunum 17 tókst Helenu að rjúfa 1000 stiga múrinn á sínu þriðja tímabili en hún hefur einnig tekið fleiri en 500 fráköst og gefið meira en 300 stoðsendingar og er með því sú eina í sögu skólans sem hefur náð þessarri frábæru tölfræði. Hægt er að lesa meira um afrek Helenu [v+]http://gofrogs.cstv.com/sports/w-baskbl/recaps/010210aaa.html[v-]hér[slod-]