12 des. 2009Kristi Smith, leikmaður Keflavíkur, vann þriggja-stigakeppni kvenna á Stjörnudeginum í Grafarvogi í dag. Kristi var í úrslitum ásamt þeim Heather Ezell, Jenny Pfifer-Finora og Koren Schram. Kristi fékk 13 stig í úrslitunum en Heather Ezell var stigahæsti keppandinn í forkeppninni með 16 stig. Úrslitin reyndust afar spennandi en Koren Schram hóf leik og setti 12 stig og setti mikla pressu á næsta keppanda sem var KR-ingurinn Jennifer Pfifer-Finora. Hún stóð sig afar vel og náði 10 stigum. Kristi Smith var þriðja og setti 13 stig. Var hún því stigahæst þegar Heather Ezell hóf leik. Ezell byrjaði á að geiga á fyrstu þremur skotun sínum og endaði með 10 stig. Það er því Kristi Smith sem var sigurvegari keppninnar í ár. Forkeppnin stig: 1. Heather Ezell Haukar 16 stig 2. Jennifer Pfifer-Finora KR 11 stig 3. Kristi Smith Keflavík 11 stig 4. Koren Schram Hamar 9 stig 5. Kristen Green Snæfell 7 stig 6. Birna Valgarðsdóttir Snæfell 7 stig 7. Hildur Sigurðardóttir KR 6 stig 8. Ólöf Helga Pálsdóttir Njarðvík 5 stig Úrslit stig: 1. Kristi Smith Keflavík 13 stig 2. Koren Schram Hamar 11 stig 3. Jennifer Pfifer-Finora 10 stig 4. Heather Ezell 10 stig