12 des. 2009Hér sést Jörundur í góðum félagsskap. Sá sem þolir Georg Bjarnfreðarson í þremur þáttaseríum er fær í flestan sjó þegar kemur að því að takast á við verkefni eins og bíður hans í leiknum gegn eldri landsliðsmönnum. Samningar hafa náðst við Daníel úr þáttaseríunum Nætur, Dag og Fangavaktinni um þátttöku hans með "Celeb" liðinu sem mætir firnasterku liði eldri landsliðsmanna í dag. "Ég heiti Daníel ekki Samúel og reyndu að muna það" er fræg setning úr Næturvaktinni en þar skaust leikarinn Jörundur Ragnarsson fram á sjónarsviðið. Færri vita að kappinn dundaði sér í körfubolta þegar hann nam fræðin i skólanum á Laugarvatni á yngri árum. Jörundur var frægur fyrir austan í tveggja manna spili með landsliðsmanninum Fannari Ólafssyni. Saman mynduðu þeir tvíeyki sem minnti á John Stockton og Karl Malone í vagg og veltunni frægu.