10 des. 2009Hér eru þeir síðustu sem mynda Celeb-liðið á Stjörnuleikshelginni á laugardaginn. Fangavörður og leikstjórnandi · Sigurður Hrannar Sigurður Hrannar leikari sló í gegn sem fautinn Ingvar í Fangavaktinni og mun mæta sem slíkur á laugardaginn og vera með skipanir um leikkerfi og leikfléttur. Skotbakvörður · Ívar Örn Sverrisson Ívar Örn er leikari og fyrrum umsjónarmaður Stundarinnar okkar er gamall leikmaður með Reykjavíkurfélögunum ÍR, KR og Ármanni og ætti því að nýtast vel í leiknum. Ívar er að kljást við smávægileg meiðsl þessa dagana og er eins og sagt er " day to day " Það kemur í ljós á leikdag hvort hann verður leikfær. Framvörður · Óli Geim-TíVÍ Ólafur hefur lítið sem ekkert leikið alvöru körfubolta en því mun meira spilað NBA Live og ætlar að nýta sér þá reynslu á laugardaginn og leiða sitt lið til sigurs. Skotbakvörður · Bergur Þór Ingólfsson Bergur Þór þótti efnilegur leikmaður á sínum yngri árum en hefur getið sér gott orð sem frábær leikari og leikur um þessar mundir í sýningunni "Jesús litli" í Borgarleikhúsinu. Það er svo möguleiki á því að 1-2 leikmenn bætist í hópinn.