9 des. 2009KKÍ heldur áfram að kynna þá leikmenn sem munu taka þátt í Celeb-leiknum. Hér fyrir neðan eru tveir sterkir póstar sem eiga án efa eftir að nýtast vel í sínu liði: Kraftframvörður · Egill "Gillzenegger" Einarsson Gillz lét hafa eftir sér að það verði engin fráköst í boði fyrir andstæðingana þar sem hann mun taka þau öll. Það er einnig spurning hvort hann kenni ekki gömlu landsliðshundunum alvöru "Mannasiði" enda rómaður fyrir kunnáttu sína í þeim efnum enda er hann með jólabókina í ár sem ber titilinn "Mannasiðir Gillz". Miðvörður · Logi Bergmann Eiðsson Logi sýndi áhugamönnum um körfu hvernig á að gera hlutina í síðasta Stjörnuleik þegar hann tók Gísla Einarsson í kennslustund en þá lék hann með Jóni Arnóri, landsliðsmanni gegn landsliðsmanninum Loga Gunnarsyni og Gísla í eftirminnilegum leik. Fleiri leikmenn verða kynntir til leiks á morgun ...