7 des. 2009
Ólafur Ólafsson leikmaður Grindavíkur sem kom sá og sigraði troðslukeppnina keppnistímabilið 2007-2008 með eftirminnilegum hætti hefur tilkynnt þátttöku sína í ár. Ólafur gat ekki verið með í síðustu keppni þar sem hann lék í Þýskalandi á síðustu leiktíð.
Ólafur hefur ákveðið að skora á erlendu leikmennina sem eru hér á landi. Vitað er til þess að nokkrir þeirra eru miklir háloftafuglar svo það má búast við skemmtilegri keppni í ár.
Troðslukeppnin fer fram í kringum Stjörnuleikina sem verða í íþróttahúsi Fjölnis í Grafarvogi laugardaginn 12. desember.
Þeir sem vilja taka þátt í troðslukeppninni geta sent póst og skráð sig á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-]