6 des. 2009Þá er leikjum kvöldsins lokið og ljóst að bikarmeistarar síðasta árs hjá konunum eru dottnar úr leik. Það verða því ný nöfn sem fara á bikarinn en bikarmeistarar Stjörnunnar duttu úr leik í 32-liða úrslitunum. Í Stykkishólmi unnu Snæfellingar sigur á Hamarsmönnu 130:75 en þar fór Sean Burton á kostum og setti eina skot sitt innan teigs niður ásamt öllum fimm vítum sínum en skoraði 16 þriggjastiga körfur og endaði með 55 stig. Skallagrímur tapaði í Borgarnesi gegn Fjölni 63:84 og KFÍ tapaði á Ísafirði 86:93. Þar með er ljóst að 8-liða úrslit karla verða eingöngu skipuð úrvalsdeildarliðum 8-liða úrslit karla: UMFN Keflavík Grindavík Fjölnir Snæfell ÍR Tindastóll Breiðablik KR tapaði á heimavelli 64:74 gegn Hamarsstúlkum og Fjölnir vann Skallagrím 49:54. 8 liða úrslit kvenna verða því þannig skipuð: 8-liða úrslit kvenna: Hamar Keflavík Fjölnir Laugdælir Haukar Snæfell Þór Akureyri Grindavík b/Njarðvík (leikurinn fer fram í Grindavík á morgun)