5 des. 2009Í gærkvöld og í nótt fóru fram 10 leikir í NBA. New York virðast vera komnir á smá flug en þeir unnu lið Atlanta sem hefur verið á góðri siglingu undanfarið. Nágrannar Knicks í New Jersey Nets bundu enda á taphrinu sína eftir 18 tapleiki og unnu Charlotte Bobcats. Cleveland vann Chicago nokkuð auðveldlega en líklega mesta spennan var í leik LA Lakers og Miami Heat þar sem Kobe Bryant og Dwayne Wade mættust í frábærum leik sem endaði á dramatískan hátt. Hægt er að sjá það besta úr leik Lakers og Heat [v+]http://www.nba.com/video/games/lakers/2009/12/04/0020900281_mia_lal_recap.nba/?ls=iref:nbahpt1 [v-]hérna[slod-].