4 des. 2009Óskar Ófeigur, blaðamaður á Fréttablaðinu, tók saman um daginn smá samantekt um +/- tölfræðina á tölfræðivef KKÍ úr Iceland Express-deild karla í vetur. Margir hafa ekki áttað sig á því hvernig þessi tala er fengin en útskýringin er einföld: Talan er fengin með því að mínusa stig skoruð og stig fengin á sig þegar leikmaður er inn á vellinum. Þetta er því í raun nettó-stigaskor liðsins þegar leikmaður er inn á vellinum. Dæmi: Leikmaður kemur inn á í stöðunni 10-10 og á meðan hann er inná skorar hans lið 15 stig gegn 2 hjá andstæðingnum. Alveg óháð hans framlagi er hann með 13 í +/-. Hægt er að sjá meðal annars bestu liðssamsetningu eftir þessari aðferð undir „Ítarlegri tölfræði" í úrslitum hvers leiks á [v+]http://www.kki.is/motayfirlit[v-]kki.is/motayfirlit[slod-] Úr greininni …. Það er flestum ljóst að tölfræði í körfubolta segir ekki alla söguna og margir mikilvægir þættir innan leiksins skila sér aldrei inn á tölfræðiskýrsluna eftir leik. Hlutir eins og góðar ákvarðanir, góð vörn, góðar hindranir eða óeigingirni inn á vellinum stuðla oftast að betri leik liðsins en koma hvergi fram í tölfræðilínu leikmanna. Í nýju tölfræðikerfi KKÍ er þó komin fram ein leið til þess að mæla áhrif leikmanna á leik liða þeirra. Nú er nefnilega hægt að sjá hvernig liðunum gengur þegar ákveðinn leikmaður er inn á en þar má sjá hvort liðið sé í plús eða mínus þegar viðkomandi leikmaður er meðal þeirra fimm sem eru á vellinum hverju sinni.