2 des. 2009Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að fresta leik Snæfells og Hauka í Iceland Expressdeild kvenna sem fram átti að fara í kvöld vegna veðurs. Þar sem íþróttahúsið í Stykkishólmi er upptekið á morgun fyrir karlaleik í Iceland Expressdeildnni og Haukar eiga að keppa í Subwaybikarnum á laugardag hefur mótanefnd ákveðið að leikurinn fari fram miðvikudaginn 9.des.kl.19:15.