27 nóv. 2009
Í kvöld er einn leikur á dagskránni í Iceland Express-deild kvenna en þá mætast Njarðvík og Snæfell í Ljónagryfjunni. Leikurinn verður
í beinni á SportTV.is.
Í 1. deild karla eru þrír leikir. Ármann tekur á móti Haukum í Laugardalshöllinni, Þór Þorlákshöfn fær Valsmenn í heimsókn og ÍA tekur á móti liði KFÍ á Skaganum.
Allir fjórir leikir kvöldsins hefjast kl. 19.15.