26 nóv. 2009Í kvöld fara fram tveir leikir í 1. deild karla. Núna kl. 18.00 mætast á Egilsstöðum lið Hattar og Skallagríms. Með sigri fara Skallagrímsmenn upp á toppinn í deildinni. Á Akureyri mætast heimamenn í Þór og lið Hrunamanna. Leikurinn hefst kl. 19.15. Hrunamenn geta jafnað ÍA og Þór Akureyri að stigum takist þeim að sigra í sínum fyrsta leik í vetur. Á morgun eru svo þrír leikir á dagskránni, Ármann-Haukar, Valur-Þór Þorlákshöfn og ÍA-KFÍ.