25 nóv. 2009Laugardaginn 12. desember fara fram árlegir Stjörnuleikir KKÍ, í ár fara þeir fram í Dalhúsum Grafarvogi. Á morgun fimmtudag munu liðin verða valin en til þess að stjórna liðunum hafa verið fengnir þjálfarar efstu tveggja liðanna í Iceland Expressdeildunum miðað við stöðuna eins og hún er núna. Þjálfarar kvennaliðanna eru Benedikt Guðmundson þjálfari KR sem stjórnar Iceland Express-liðinu og Ágúst Björgvinsson úr Hamri stjórnar Shell-liðinu. Iceland Express-liði karla stjórnar Njarðvíkingurinn Sigurður Ingumundarson og Guðjón Skúlason þjálfari Keflvíkinga stjórnar Shell-liðinu. Þjálfaranir munu velja leikmenn liðanna í beinni útsendingu á [v+]http://www.sporttv.is/[v-]Sporttv.is[slod-] á morgun fimmtudag. Valið á kvennaliðunum hefst kl. 14:00 og karlaliðunum kl. 14:30. Valið fer þannig fram að þjálfararnir velja til skiptis einn leikmann í einu og svo þannig koll af kolli þangað til að liðin verða fullskipuð. Hver þjálfari fær sex mínútur í heildina fyrir valið á sínu liði, skákklukka verður á staðnum sem þjálfararnir munu notast við. Þannig að mögulega eiga þeir nægan tíma þegar kemur að því að velja síðustu leikmennina eða verða í tímahraki sem verður að teljast líklegra. Það verður því skemmtilegur körfuboltadagur í Grafarvoginum laugardaginn 12.desember með tveimur Stjörnuleikjum sem og öðrum skemmtilegum körfuboltauppákomum en KKÍ hefur ákveðið að hafa frítt á leikina. Við hvetjum lesendur kkí.is að fylgjast með á morgun á sporttv.is þegar þjálfararnir velja leikmennina í Stjörnuliðin.