19 nóv. 2009Um síðustu helgi voru nýjar höfuðstöðvar FIBA Europe formlega opnaðar en þær eru staðsettar sem áður í Munchen í Þýskalandi. Nýja húsnæðið var byggt árið 1971 en síðastliðna 8 mánuði var allt tekið í gegn og lagfært svo það myndi henta sem best. Húsið er um 1600 fermetrar að stærð og er staðsett á Ismaninger Str. 21 í Bogenhausen hverfinu. Öllum stjórnendum innan FIBA Europe var boðið í heimsókn en það var svo borgarstjóri Munchen sem opnaði húsið við hátíðlega athöfn. Skrifstofurnar verða opnaðar þriðjudaginn 1. desember.