17 nóv. 2009Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í TCU unnu auðveldan sigur í einum af sínum fyrstu leikjum árinu þegar þær lögðu lið Houston Baptist auðveldlega 107:30. Staðan í hálfleik var 60:13 og því ekki um mikla mótstöðu að ræða í þessum leik. TCU-liðið leikur nokkra sýningar- og opnunarleiki á tímabilinu og leika næst gegn liði Fresno State. Helena var aðeins einu frákasti frá því að vera önnur í sögu skólans til að ná Þrefaldri-tvennu en hún var með 13 stig, 10 stoðsendingar og 9 fráköst í leiknum. Framundan eru nokkri leikir og meðal annars þriggja liða mót á Bahamas en svo tekur alvaran við og keppni hefst á fullu í deildinni í kringum 1. desember.