10 nóv. 2009Nú rétt í þessu var verið að draga í 16-liða úrslit karla og kvenna í Subwaybikarnum en eftirfarandi lið drógust saman. Það voru þeir Hjörvar Hafliðason hjá Íslenskum Getraunum og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ sem drógu úr skálinni góðu að þessu sinni. Leikið verður helgina 5. til 7. desember. Konur Grindavík b - Njarðvík Haukar - Valur Laugdælir - Stjarnan Keflavík b - Þór Ak. Skallagrímur - Fjölnir Keflavík - Grindavík KR - Hamar Snæfell situr hjá Karlar Breiðablik - ÍBV Skallagrímur - Fjölnir Grindavík - Ármann Laugdælir - Tindastóll Valur - Keflavík Snæfell - Hamar Hrunamenn - Njarðvík KFÍ - ÍR