30 okt. 2009Um helgina fara fram fimm leikir í 1. deild karla. Hattar menn komur suður og leika tvo leiki, fyrst í kvöld gegn Haukum og svo gegn Þór Þorlákshöfn á sunnudaginn. Á Flúðum er hörkuleikur milli Hrunamanna og ÍA en þar mun annað liðið ná í sinn fyrsta sigur í vetur. KFÍ og Höttur eru bæði með þrjá sigra úr fyrstu þremur leikjum sínum og spurning hvort að þau haldi áfram að safna stigum og verði taplaus eftir leiki helgarinnar. Föstudagur kl. 18.30 · Skallagrímur - Ármann kl. 19.15 · Haukar - Höttur kl. 19.15 · Hrunamenn - ÍA kl. 20.00 · Valur - KFÍ Sunnudagur kl. 13.00 · Þór Þorláksöfn - Höttur