30 okt. 2009Á kynningarfundinum fyrir Iceland Express-deildina var frumsýnt skemmtilegt myndband sem Stöð 2 Sport klippti saman fyrir KKÍ með skemmtilegum svipmyndum frá Iceland Express-deildum karla og kvenna 2008-2009. Þar eru sýndar myndir úr leikjum karla og kvenna á tímabilinu í fyrra og svo er veglegur pakki í lokin frá úrslitviðureignum Hauka og KR kvenna og KR og Grindavíkur hjá körlunum sem fangar stemmninguna sem ríkti síðastliðið vor í úrslitakeppninni. Hægt er að sjá myndbandið [v+]http://www.kki.is/video.asp[v-]hérna[slod-].