27 okt. 2009Í kvöld fara fram nokkrir leikir í Drengjaflokki og meðal annars eigast við í Stykkishólmi lið Skallagríms/Snæfells og Kópavogspiltar í liði Breiðabliks. Snæfell hefur haft þann háttinn á í vetur að vera með leiki Drengjaflokks í BEINNI tölfræðilýsingu á netinu og er það afar skemmtilegt framtak. Vert er að benda á að allir sem hafa áhuga á geta sent út beint frá leikjum hjá sínu félagi en það eina sem þarf að gera er að skila inn leikmannalistum beggja liða til að setja inn einu sinni fyrir hvert lið. Leikurinn hefst kl. 19.00 og hægt er að nálgast hann BEINT[v+]http://www.kki.is/widgets_home.asp#mbt-widget:JTI2cmVxdWVzdCU1QjAlNUQlNUJjb250YWluZXIlNUQlM0R2aWV3MiUyNnJlcXVlc3QlNUIwJTVEJTVCd2lkZ2V0JTVEJTNENTAwJTI2cmVxdWVzdCU1QjAlNUQlNUJwYXJhbSU1RCU1QmxlYWd1ZV9saW5rX3Zpc2libGUlNUQlM0QxJTI2cmVxdWVzdCU1QjAlNUQlNUJwYXJhbSU1RCU1QnRlYW1fbGlua192aXNpYmxlJTVEJTNEMSUyNnJlcXVlc3QlNUIwJTVEJTVCcGFyYW0lNUQlNUJnYW1lX2xpbmtfdmlzaWJsZSU1RCUzRDElMjZyZXF1ZXN0JTVCMCU1RCU1QnBhcmFtJTVEJTVCcGxheWVyX2xpbmtfdmlzaWJsZSU1RCUzRDElMjZyZXF1ZXN0JTVCMCU1RCU1QnBhcmFtJTVEJTVCbGVhZ3VlX2xpbmtfdHlwZSU1RCUzRDMlMjZyZXF1ZXN0JTVCMCU1RCU1QnBhcmFtJTVEJTVCbGVhZ3VlX2xpbmtfaGFuZGxlciU1RCUzRG5hdmlnYXRlTGVhZ3Vl [v-] hérna[slod-]. Leikir kvöldsins í Drengjaflokki Skallagrímur/Snæfell · Breiðablik Stjarnan · Grindavík ÍR · Ármann Njarðvík · Hamar/Þór Þ.