26 okt. 2009Mótanefnd KKÍ ákvað á fundi sínum þriðjudaginn 20. október 2009 eftirfarandi vinnureglur v/veikinda sem eru að herja á landsmenn. · Formaður körfuknattleiksdeilda eða forsvarsmaður yngri flokka eru einu fulltrúar félags sem getur óskað eftir frestun leikja v/veikinda. · Í ljósi mikils álags á heilbrigðisstofnanir verður ekki krafist læknisvottorða v/veikinda leikmanna. Þetta fyrirkomulag verður endurskoðað á tveggja vikna fresti. · Forsvarsmenn verða að vera í góðu og tímanlegu sambandi við skrifstofu KKÍ ef hætta er á að lið ná ekki að mæta til leiks v/veikinda. · Ekki er hægt að óska eftir frestun v/veikinda ef fáir leikmenn liðs eru veikir. Körfuknattleikssambandið heldur úti einu veigamesta mótahaldi í íþróttum hér á landi og því er ljóst að ef mikið verður af frestunum á leikjum hjá okkur þá mun það klárlega hafa í för með sér aukið álag á alla þá sem að starfinu koma, sem og íþróttahúsin þegar líður á keppnistímabilið, svo ekki sé talað um aukakostnað oft á tíðum. Mótanefnd biður því um að allar beiðnir til hennar séu teknar af vel ígrunduðu máli og ekki í fljótfærni.