24 okt. 2009
Hamar tók á móti Val í dag í Iceland Express deild kvenna. Þessum leik var frestað um síðustu helgi. Hamarskonur höfðu betur eftir að staðan í hálfleik var 35:35. Lokatölur voru 86:64 Stigahæstar hjá Hamri voru Koren Schram með 21 stig, Kristrún með 20 og Fanney með 16 stig. Hjá Val var Þórunn með 20 stig og Sakera Young 13. Tölfræði leiksins kemur inn síðar.