23 okt. 2009Meistaradeild Evrópu er farin af stað og voru fyrstu leikirnir spilaðir sl. miðvikudagskvöld og í gærkvöldi. Meistaradeildin er samansafn af mörgum bestu leikmönnum heims og er hrein unun að fylgjast með leikjum liðanna. Hægt er að kaupa sér aðgang á netinu til að horfa á alla leikina eða valda leiki. Það verður enginn svikinn af því að kynna sér evrópskan körfubolta. Á heimasíðu deildarinnar er hægt að fá allar upplýsingar um liðin, leikina og áskriftina. Einnig eru viðtöl við þjálfara og leikmenn ýmist í rituðu máli eða töluðu. [v+]http://www.euroleague.net/[v-]Heimasíða deildarinnar[slod-]