22 okt. 2009Í kvöld fóru fram þrír leikir í Iceland Express-deild karla. Í Stykkishólmi kom Stjarnan í heimsókn og höfðu Garðbæingar með sér sigur í farteskinu heim en þeir skoruðu síðstu tvö stigin úr vítum og unnu 81:82. Í Keflavík áttust við heimamenn og nýliðar Fjölnis þar sem Keflavík vann örugglega 96:54. ÍR og Hamar áttust við í Kennó og þar unnu heimamenn sigur á gestunum úr Hveragerði 95:69.