21 okt. 2009Um næstu helgi verður dómaranámskeið á Sauðárkróki. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Á laugardeginum verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður á sunnudagsmorgninum. Dagskrá: Laugardagur 24. október 13-19 Fyrirlestrar og umræður - bóklegt Sunnudagur 25. október 10 Bóklega prófið 11-13 Verklega prófið Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans. Hér má sjá fræðsluáætlun [v+]http://www.kki.is/skjol/fraedslumal_thjalfaramenntun_april09.pdf[v-]KKÍ[slod-]. Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta. Síðasti skráningardagur er 23. október. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu. Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, síma, heimilisfang, e-mail og félag.