18 okt. 2009Í kvöld fóru fram þrír leikir í Iceland Express-deild karla. Njarðvík vann öruggan sigur á Tindastól í Njarðvík 108:81. Í Reykjavíkurslag kvöldsins áttust við KR og ÍR í Vesturbænum og þar sigraði 82:73. Það var einnig sannkallaður Suðurlandsskjálfti þegar Hamar og FSu áttust við í Hveragerði en þar unnu heimamenn stórsigur 113:74 þar sem Marvin Valdimarsson skoraði 51 stig fyrir Hamarsmenn. Keflavík og Grindavík áttust við í Iceland Express-deild kvenna og þar sigrðu gestirnir frá Grindavík 54:67.