14 okt. 2009Breiðablik mun eins og undanfarin ár standa fyrir utandeild í körfuknattleik. Öllum er heimil þátttaka sem ekki leika í Iceland Express-deildum karla og kvenna eða í 1. deild karla. Öllum liðum verða tryggðir 5 leikir í deildinni en keppnisfyrirkomulag verður ákveðið þegar ljóst er hversu mikill fjöldi liða tekur þátt. · Spilaðir eru 2x16 mínleikir með gangandi klukku. Síðustu 2. mín í seinni hálfleik er klukkan stoppuð eftir KKÍ reglum (þegar bolti er útaf, við villur, skoraða körfu og svo framvegis)
-1 x leikhlé er í seinni hálfleik. 
· Þegar réttur er á 2x eða 3x vítaskotum þá er eingöngu tekið eitt skot sem gildir þá 2 eða 3 stig eins og við á.
 · Engin skotklukka er í leikjum. Dómara er þó heimilt að hefja upphátt niðurtalningu úr 10 sek telji hann að um tilraun til leiktafar sé að ræða.
-Skiptingar eru leyfðar í hvert sinn sem bolti er úr leik en klukkan ekki stöðvuð meðan skipting fer fram. · 12 leikmenn á skýrslu í hverjum leik. Leikir fara fram í Smáranum og verður leikið á föstudagskvöldum í vetur. Hægt verður að fylgjast með niðurröðun og úrslitum leikja á Breidablik.is. Þátttökugjald er kr. 45.000 pr. lið. Hvert lið fær 5 leiki með dómara og ritaraborði. Þátttökutilkynningum þar sem fram kemur nafn liðs, nafn, heimilisfang, gsm sími og netfang forsvarsmanns, skal skila til Péturs Hrafns Sigurðssonar, [p+]petur@getraunir.is[p-] petur@getraunir.is[slod-] fyrir miðvikudaginn 21. október.