11 okt. 2009Meistarakeppni KKÍ 2009 fer fram í DHL höllinni í dag Þá mætast Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar frá síðasta keppnistímabilinu í árlegum góðgerðarleik. Frá árinu 1995 hefur þessi leikur verið góðgerðarleikur og rennur allur aðgangseyrir til ákveðins góðgerðarfélags. Allir sem að leikjunum koma gefa sína vinnu til styrktar málefninu hverju sinni. Í ár verður það Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna sem fær allt það fé sem safnast í kringum leikina. Dagskráin í DHL höllinni verður með þessum hætti: 16:30 Haukar - KR Íslandsmeistarar Hauka leika gegn Bikarmeistara KR í kvenna. 19:15 KR - Stjarnan Íslandsmeistari KR tekur á móti Bikarmeistara Stjörnunni en þessi lið léku einmitt til úrslita í Subwaybikar karla sl. tímabil. Troðslur og þriggja stiga körfur safna fé fyrir Neistann: Iceland Express og Subway styrkja Neistann sérstaklega með skemmtilegri uppákomu. Iceland Express og Subway hafa ákveðið að setja ákveðna upphæð undir fyrir hverja þriggja stiga körfu og troðslu í leikjunum. Iceland Express greiðir fyrir slíkar körfur hjá liðunum sem eru Íslandsmeistarar í Iceland Express deildunum og Subway gerir slíkt hið sama fyrir liðin sem eru Subwaybikarmeistarar. Fyrir hverja þriggja stiga körfu er greitt kr. 2500 og troðslu kr. 5000. Miðaverð: 1000 fyrir fullorðna, 500 fyrir 12-16 ára. Frítt fyrir börn. Engin fríkort gilda á þessa leiki.