11 okt. 2009KR-ingar unnu Hauka 78-45 í árlegum leik um meistara meistaranna. Keppt var í DHL-höllinni og að þessu sinni rann allur ágóði af leiknum til Neistans - styrktarfélags hjartveikra barna. Stigahæst hjá KR var Jenny Pfeiffer-Finora með 15 stig en næst henni voru þær Signý Hermannsdóttir og Hildur Sigurðardóttir með 11 stig hvor. Eftir tæpan klukkutíma eða kl. 19.15 hefst leikur KR og Stjörnunnar í karlaflokki.