
10 okt. 2009Í dag á milli 13:00 og 17:00 gefst gestum Smáralindarinnar tækifæri á því að spreyta sig í körfubolta. Búið er að setja upp körfur og merktan körfuboltavöll í Vetrargarðinum. Dagskráin stendur yfir frá 13:00 - 17:00. M.a. sem verður boðið upp á: 13:00 - Skotleikir og þrautir 14:00 - Íslandsmót í Fingraspuna. Þar gefst áhugasömum tækifæri á því að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar með því að verða fyrsti Íslandsmeistarinn í þessari listgrein. Það er öllum frjálst að taka þátt og það er leyfilegt að koma með sinn eigin bolta. 15:00 - Leikmenn frá karla og kvennaliði KR, kvennaliði Hauka og karlaliði Stjörnunnar sem leika í Meistarakeppninni á sunnudaginn mæta á svæðið og gefst gestum kostur á að skora á þá í skotkeppni. Fulltrúar frá [v+]http://www.neistinn.is/[v-]Neistanum[slod-], styrktarfélagi hjartveikra barna verða á staðnum og kynna sína starfsemi en KKÍ lætur allan ágóða af leikjum Meistara Meistarann renna til Neistans. 16:00 - Framhald á skotleikjum, kynningu á körfubolta og ýmsu fleira. 17:00 - Áætlað að dagskrá ljúki. Það verða ýmis verðlaun gefin fyrir skotleikina og þrautirnar og má nefna gjafabréf frá Iceland Express, Subway og Friday's. Bikar verður fyrir Íslandsmeistarann í Fingraspuna. Þórður Helgi Þórðarson, a.k.a. Doddi litli eða Loveguru verður á staðnum og heldur uppi dynjandi takti með sinni alkunnu snilld. Nú er um að gera fyrir fjölskyldur að skella sér í Smáralindina í dag og gera sér glaðan dag. Sjáumst í Vetrargarðinum.


