9 okt. 2009

Unglingaráð körfuknattleiksdeildarinnar í Grindavík stendur fyrir þjálfaranámskeiði mánudaginn 12. október næstkomandi frá kl. 17:15 fyrir sína þjálfara.
 Þjálfurum annarra félaga og aðrir eru velkomnir án endurgjalds. Námskeiðið verður í Röstinni, íþróttahúsi Grindavikur.

 Dagskrá:
 Kl. 17:15 – 18:15 · Victor Finora Frjáls sókn
 Kl. 18:15 – 19:15 · Friðrik Ragnarsson Maður á mann vörn

 Skráning er óþörf, bara mæta og drekka í sig viskuna. Grindavík hélt samskonar námskeið í fyrra sem var vel sótt og vakti mikla lukku meðal þátttakenda enda um frábært framtak að ræða hjá Grindavík. Við hvetjum alla til að mæta á mánudaginn og einnig til skipuleggja fleiri námskeið í vetur.