7 okt. 2009Smartstatt námskeið verður haldið í tengslum við leik Meistara Meistaranna um næstu helgi. KKÍ mun halda námskeið og kynna forritið sem notað verður í Iceland Express-deildunum og 1. deild karla í vetur. Þar gefst félögunum í þessum deildum sem og öllum þeim sem vilja senda út beint frá leikjum í vetur tækifæri til að læra á forritið. Námskeiðið verður haldið fyrir fyrsta leik í DHL-höllinni á sunnudaginn kemur kl 14.30, og er miðað við um það bil einn og hálfur til tveir tímar fari í námskeiðshöld. Þá yrði sýnt hvernig á að tengjast inn og senda út beint á netinu, sýnt hvernig forritið virkar sem og hvað er á bakvið kerfið. Leiðbeinandi námskeiðisins ætlar að sýna leik á tjaldi af DVD sem hann myndi einnig sýna hvernig á að statta. Þátttakendur koma með fartölvu með sér og taka virkan þátt með þvi að prufa sjálfir forritið á sinni tölvu. Skráning er hafin á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-].