
7 okt. 2009Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru á hendur Daða Berg Grétarssyni, leikmanni ÍR. Daði þurfti að yfirgefa leikvöllinn eftir að hafa fengið tvær tæknivillur í leik ÍR og Hauka á Íslandsmóti í unglingaflokki karla þann 1. október síðastliðin. Nefndin hefur veitt honum áminningu og fær hann því ekki leikbann.