
3 okt. 2009Sporttv.is hefur ákveðið þeir muni sýna báða úrslitaleikina á morgun í Poweradebikarnum beint á vefnum sínum. SportTV.is er nýr vefmiðill sem mun leggja áherslu á það í vetur að sýna beint frá helstu íþróttaviðburðum landsins sem í boði verða. Klukkan 13.00 mætast Hamar og KR í kvennaflokki og strax að þeim leik loknum eða klukkan 15.30 mætast erkifjendurnir í Njarðvík og Grindavík í karlaflokki. Það verður sannkölluð körfuboltaveisla í Laugardalshöll á morgun þegar úrslitaleikir Poweradebikarsins fara fram en það má í raun segja að þessir leikir séu góð upphitun fyrir Iceland Express-deildina sem hefst von bráðar. Vefsíða [v+]http://sporttv.is/ [v-]sporttv.is[slod-].