29 sep. 2009Í kvöld fóru fram tveir leikir í undanúrslitum kvenna í Poweradebikarnum. Haukar tóku á móti Hamarstúlkum og fóru gestirnir með sigur af hólmi, 73:84. Í vesturbænum sigruðu KR-stúlkur lið Grindavíkur örugglega 67:37 Það verða því KR og Hamar sem leika til úrslita í Laugardalshöllinni, sunnudaginn 4. október næstkomandi. Á morgun verður svo leikið í undanúrslitum karla en þá mætast KR og Njarðvík í DHL-höllinni og Grindavík tekur á móti Snæfelli í Röstinni í Grindavík. Báðir leikirnir hefjast kl. 19.15.