29 sep. 2009Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru á hendur Daníeli Guðmundssyni, leikmanni Breiðabliks. Daníel þurfti að yfirgefa leikvöllinn eftir að hafa fengið tvær óíþróttamanslegar villur í leik Breiðabliks og Tindastóls í Poweradebikarnum þann 23. september. Nefndin hefur veitt honum áminningu og fær hann því ekki leikbann.