25 sep. 2009Í kvöld fóru fram tveir leikir í Poweradebikar kvenna en þetta voru fyrstu leikirnir í 8-liða úrslitunum og lauk þeim báðum með sigri heimaliðanna. Um helgina eigast svo við KR og Snæfell á laugardaginn og á sunnudaginn eigast við Keflavík og Grindavík. Að Ásvöllum tóku íslandsmeistararnir á móti liði nýliða Njarðvíkur og höfðu góðan sigur 75:50. Staðan í hálfleik var 42:20. Í Hveragerði tóku Hamarstúlkur á móti Valsstúlkum. Harmar sigraði með 34 stiga mun, 84:50. Hamar var yfir í hálfleik 36:25. Tölfræði kvöldsins er hægt að skoða [v+]http://www.kki.is/widgets_home.asp [v-]hérna[slod-].