
23 sep. 2009KKÍ er að taka í notkun nýtt móta- og tölfræðikerfi fyrir komandi tímabil. Á síðasta ári notuðum við kki.is/live sem var sér síða og hélt utan um alla tölfræði og beinar lýsingar. Nú hefur þetta kerfi verið fært inn á kki.is síðuna sjálfa og sömuleiðis mun kki.is/mot vera þar sem mótayfirlitið er fara í nýtt útlit og nýtt kerfi. Enn um sinn er verið að fínstilla þetta til, íslenska og bæta útlit og mun það gerast á næstu dögum. Tölfræði úr Poweradebikarnum Tölfræðina úr fyrstu leikjum þessa árs í Poweradebikarnum eru komnar inn í nýjar kerfið og hægt er að nálgast það í valmyndinni hérna til hliðar, smella á "Leikir í beinni" efst til hægri eða með því að smella [v+]http://www.kki.is/widgets_home.asp [v-]hér[slod-].