21 sep. 2009Fjórða árið í röð heldur unglingaráð körfuknattleiksdeildar KR mót fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára í samstarfi við Eymundsson. Mótið verður haldið 3.-4. október í ár, en það hefur tekist einstaklega vel í síðustu þrjú skipti og vaxið janft og þétt. Skráning stendur yfir til mánudagsins 28. september á netfanginu [p+]benedikt@kr.is[p-]benedikt@kr.is[slod-] eða í síma 510-5312. Mótsgjaldið er 2.000 kr. á hvern leikmann. Ekki þarf að skrá hvern og einn iðkanda heldur þarf að skrá lið og tiltaka fjölda í liðinu. Fyrirkomulagið er þannig að leikið er í 2x12 mínútur og er leiktíminn ekkert stöðvaður. Leikið er í báðum sölum DHL-hallarinnar og er dómari á hverjum velli. Hvert lið fær að lágmarki fjóra leiki í mótinu og er spilað á einum degi í hverjum aldursflokki. Eftir mótið verður síðan verðlaunaafhending og fá allir þátttakendur verðlaunapening.