19 sep. 2009Ender Arslan jafnaði leikinn fyrir Tyrkland með því að brjótast í gegnum vörn Grikkja og tryggði sínu liði framlengingu um leið og tíminn rann út. Hann klikkaði hinsvegar á þriggjastiga skoti sem hefði sent Tyrkland áfram í undanúrslitin í framlengingunni. Það gekk mikið á í kvöld í lokaleikjunum tveim í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar í Póllandi. Fyrri leikur dagsins var æsispennandi og fór í framlengingu milli Tyrklands og Grikklands. Þar reyndust Grikkir hlutskarpari að lokum en Tyrkir hefðu getað stolið sigrinum þar sem þeir áttu síðasta skotið fyrir utan þriggjastigalínuna. Leikurinn fór 76:74. Í hinum leik kvöldsins sýndu Slóvenar úr hverju þeir eru gerðir eftir að hafa verið undir 15 stigum í seint í fyrri hálfleik. Þeir komu til baka og unnu tveggja stiga sigur á Króötum, 67:65, og fara því í undanúrslitin sem fara fram á morgun, laugardag, og tryggðu sér sæti á HM í Tyrklandi næsta haust. Jafnframt verður leikið um hvaða lið leika um sæti 5-6 sem gefa sæti á HM að ári á morgun og á sunnudaginn eru svo lokaleikirnir í keppninni. · 4-liða úrslitin · Spánn · Grikkland Serbía · Slóvenía · Fyrstu leikir um 5.-8. sæti · Frakkland · Tyrkland Rússland · Króatía