19 sep. 2009Það voru Frakkland og Króatía sem tryggðu sér síðustu sætin á HM næsta haust en efstu sex sætin á EM gefa beint sæti á HM. Frakkar unnu Tyrki og Króatar unnu Rússa í leikjum dagsins. Spánverjar voru að leggja Grikki að velli 82:64 eftir að hafa verið yfir 49:40 yfir í hálfleik. Þeir mæta því sigurvegaranum úr síðasta leik dagsins í úrslitunum á morgun, en í kvöld eigast við Serbar og Slóvenar.